Skipulagsráð

436. fundur 11. desember 2024 kl. 08:15 - 12:00 Hótel KEA
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Þórhallur Jónsson
  • Helgi Sveinbjörn Jóhannsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Jón Hjaltason
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sindri S. Kristjánsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
  • Olga Margrét Kristínard. Cilia lögfræðingur
  • Einar Sigþórsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Pétur Ingi Haraldsson forstöðumaður skipulagsmála
Dagskrá

1.Umferðaröryggisáætlun

Málsnúmer 2024060858Vakta málsnúmer

Berglind Hallgrímsdóttir samgönguverkfræðingur hjá Eflu kynnti vinnu við gerð umferðaröryggisáætlunar fyrir Akureyrarbæ sem er í vinnslu.
Skipulagsráð þakkar Berglindi Hallgrímsdóttur fyrir kynninguna.

2.Blöndulína 3 - aðalskipulagsbreyting

Málsnúmer 2024010552Vakta málsnúmer

Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 vegna Blöndulínu 3 (Rangárlínu). Er afmarkað helgunarsvæði fyrir háspennulínu frá sveitarfélagamörkum að Rangárvöllum. Fram kemur að þegar tæknilegar forsendur bjóða upp á að þá verði hægt að setja hluta línunnar í jörðu og er sýnd tillaga að legu fyrirhugaðs jarðstrengs.
Meirihluti skipulagsráðs samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að kynna fyrirliggjandi drög að breytingu á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.


Þórhallur Jónsson D-lista greiðir atkvæði á móti og óskar bókað eftirfarandi:

Ég ítreka bókun mína frá 31. janúar að það sé stefna stjórnvalda að línur skuli lagðar í jörðu innan þéttbýlis og að ekki sé hægt að víkja frá því í þessu tilfelli þar sem Akureyri sé landlítið sveitarfélag sem byggist hratt upp og fyirhugað er að skipuleggja byggð í næsta nágrenni við línuleiðina á næstu árum.

3.Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030 - ýmsar breytingar

Málsnúmer 2022090355Vakta málsnúmer

Lýsing fyrir endurskoðun aðalskipulags Akureyrar 2018-2030 var í kynningu frá 6. nóvember til 4. desember 2024. Umsagnir bárust frá Norðurorku, Minjastofnun, Hörgársveit, Eyjafjarðarsveit, Skipulagsstofnun og umhverfis- og mannvirkjasviði Akureyrarbæjar. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að halda áfram vinnu við breytingu á aðalskipulagi til samræmis við þau atriði sem tilgreind eru í fyrirliggjandi lýsingu.

4.Breyting á aðalskipulagi - reitur VÞ13 eða Naustagata 13

Málsnúmer 2024080332Vakta málsnúmer

Lýsing aðalskipulagsbreytingar sem nær til lóðarinnar Naustagata 13, merkt VÞ13, lögð fram að lokinni kynningu. Umsagnir bárust frá Norðurorku og Minjastofnun en að öðru leyti voru ekki gerðar athugasemdir við lýsinguna.
Í upphafi þessa dagskrárliðar bar Halla Björk Reynisdóttir L-lista upp mögulegt vanhæfi til þess að fjalla um þennan lið.


Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir skipulagsráð og var það samþykkt.


Meirihluti skipulagsráðs felur skipulagsfulltrúa að hefja vinnu við gerð breytingar á aðalskipulagi lóðarinnar. Verður breytingin tekin til afgreiðslu á sama tíma og drög að breytingu á deiliskipulagi hefur borist.


Helgi Sveinbjörn Jóhannsson M-lista situr hjá við afgreiðslu málsins.

5.Austursíða 4 - umsókn um breytingu á aðalskipulagi

Málsnúmer 2023090795Vakta málsnúmer

Auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem nær til lóða við Austursíðu 2-6 lauk þann 28. nóvember sl. Í breytingunni felst að landnotkun á svæðinu breytist úr athafnasvæði í verslun- og þjónustu. Er gert ráð fyrir blandaðri landnotkun á svæðinu með heimild fyrir íbúðum á efri hæðum og miðað við að íbúðarhús geti verið allt að 5 hæðir.

Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, umhverfis- og mannvirkjasviði og Norðurorku.

Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 skv. 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

6.Glerártorg og nánasta umhverfi - breyting á aðalskipulagi.

Málsnúmer 2024040964Vakta málsnúmer

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillaga að breytingu á aðalskipulagi sem nær til svæðis sem afmarkast af götunum Borgarbraut, Glerárgötu, Þórunnarstræti, Byggðavegi og Klettaborg. Í breytingunni felst að landnotkun svæðisins breytist í miðsvæði þar sem auk uppbyggingar verslunar- og þjónustu verði heimilt að byggja allt að 250 íbúðir. Þá er einnig gert ráð fyrir jöfnunarstöð strætó á svæði milli Borgarbrautar og Glerár á um 0,2 ha svæði.


Engar athugasemdir eða umsagnir bárust á kynningartíma vinnslutillögu.
Skipulagsráð frestar afgreiðslu.

7.Jöfnunarstoppistöð - breyting á deiliskipulagi Glerár

Málsnúmer 2024120340Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. desember 2024 þar sem að Lilja Filippusdóttir fh. umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar óskar eftir breytingu á deiliskipulagi Glerár, frá stíflu til sjávar.

Breytingin felur í sér að skilgreind er ný jöfnunarstoppistöð norðan Glerártorgs ásamt ýmsum breytingum á stígum, stofnstígum, göngum, brúm o.fl.
Skipulagsráð frestar afgreiðslu.

8.Dvalarheimilið Hlíð - skipting lóðar

Málsnúmer 2024080401Vakta málsnúmer

Á fundi skipulagsráðs 14. ágúst sl. var samþykkt að gerð yrði breyting á deiliskipulagi Hjúkrunarheimilisins Hlíðar sem fólst í að stofnuð yrði ný 6.275,3 fm lóð utan um núverandi raðhús og bílastæði þar sunnan við.


Er nú lögð fram uppfærð tillaga að skiptingu lóðarinnar sem felur í sér að lóð utan um raðhús verður 2.873,6 fm að stærð og að lóð hjúkrunarheimilisins verði 15.006,6 fm. Bílastæði sunnan raðhúsa verði utan lóða.

Þá er einnig bætt við kvöð um stíg frá Álfabyggð og til suðurs auk þess sem lega stígs um lóð Norðurorku breytist lítillega.
Skipulagsráð samþykkir að gera breytingu á deiliskipulagi Hjúkrunarheimilisins Hlíðar til samræmis við fyrirliggjandi tillögu að skiptingu lóðarinnar. Að mati ráðsins er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er ekki talin þörf á grenndarkynningu þar sem eingöngu er verið að breyta lóðamörkum og kvöðum um stíga innan lóða Akureyrarbæjar og Norðurorku.

9.Skólastígur 6 - umsókn um skipulag

Málsnúmer 2024110946Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. desember 2024 þar sem Ágúst Hafsteinsson arkitekt hjá Form ráðgjöf ehf. fh. Norðurorku, leggur fram uppfærða tillögu að afmörkun lóðar fyrir spennistöð norðan Sundlaugar Akureyrar.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við tillögu 1 í erindinu. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er ekki talin þörf á grenndarkynningu. Er skipulagsfulltrúa falið að sjá um gildistöku breytingarinnar þegar fullnægjandi gögn liggja fyrir.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.

10.Hagaleikskóli - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2024120339Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. desember 2024 þar sem að Ágúst Hafsteinsson fh. umhverfis- og mannvirkjasviðs óskar eftir óverulegri deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi Naustagötu 9, leikskólalóð.

Breytingin felur í sér stækkun á lóð, nýrri aksturstengingu, svæði fyrir smáhýsi og djúpgáma auk tilfærslu á byggingarreit.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ekki er talin þörf á grenndarkynningu sbr. 44. gr. laganna. Er skipulagsfulltrúa falið að sjá um gildistöku breytingarinnar þegar fullnægjandi skipulagsgögn liggja fyrir.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.

11.Breyting á deiliskipulagi Móahverfis - gróðurskipulag

Málsnúmer 2024120356Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Móahverfis sem felst í nákvæmari útfærslu á uppbyggingu trjágróðurs í landi bæjarins. Jafnframt er lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Borgarbrautar - Vestursíðu þar sem gert er ráð fyrir stækkun jarðvegsmanar og nánari útfærslu á gróðri.
Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi tillögur að breytingu á deiliskipulagi verði samþykktar og jafnframt auglýstar skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

12.Aðalstræti 13 - fyrirspurn varðandi skipulagsmál

Málsnúmer 2024120281Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. desember 2024 þar sem að Þórir Guðmundsson fh. Stefáns Þórs Gestssonar óskar eftir breytingu á deiliskipulagi sem nær til lóðarinnar Aðalstrætis 13.

Breytingin felst í því að nýsamþykktur byggingarreitur fyrir bílskúr færist um 50 cm til norðurs og er þar með ekki lengur á lóðamörkum til suðurs við Aðalstræti 15.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ekki er talin þörf á grenndarkynningu sbr. 44. gr. laganna. Er skipulagsfulltrúa falið að sjá um gildistöku breytingarinnar þegar fullnægjandi skipulagsgögn liggja fyrir.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.

13.Hlíðarfjallsvegur - deiliskipulagsbreyting vegna smáhýsa

Málsnúmer 2024120316Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir virkjun á Glerárdal, á svæði milli Hlíðarfjallsvegar og stöðvarhúss Glerárvirkjunar II. Í breytingunni felst að afmörkuð er lóð fyrir allt að fimm um 35 fm lítil einbýlishús.
Afgreiðslu frestað og skipulagsfulltrúa falið að óska eftir umsögn velferðarsviðs, umhverfis- og mannvirkjasviðs, Minjastofnunar og Norðurorku.

14.Húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar 2025

Málsnúmer 2024100417Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að endurskoðun húsnæðisáætlunar fyrir Akureyrarbæ, sem gildir fyrir tímabilið 2024-2034.

Skipulagsráð frestar afgreiðslu og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir umsögn umhverfis- og mannvirkjaráðs, Norðurorku, velferðarsviðs og fræðslu- og lýðheilsusviðs um drögin.

15.Hulduholt 29 og 31 - Lóðaúthlutun

Málsnúmer 2024120308Vakta málsnúmer

Skipulagsráð samþykkti deiliskipulagsbreytingu fyrir Hulduholt 31 í október sl. og var breytingin samþykkt í B-deild Stjórnartíðinda 25. október sl.

Lagðir eru fram útboðsskilmálar fyrir lóðirnar.

Skipulagsráð leggur til við bæjarráð að lóðirnar verði auglýstar með útboði til samræmis við fyrirliggjandi útboðsskilmála, þegar lóðirnar hafa verið stofnaðar í fasteignaskrá og mæliblað hefur verið uppfært.

16.Goðanes 3b - lóðaúthlutun

Málsnúmer 2024120323Vakta málsnúmer

Breyting á deiliskipulagi Krossaneshaga A, þar sem afmörkuð er ný 2.304,2 fm athafnalóð með hámarksnýtingarhlutfall upp á 0.5, tók gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda þann 27. nóvember 2024.
Skipulagsráð samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að auglýsa lóðina þegar mæliblað liggur fyrir og þegar hún hefur verið stofnuð í fasteignaskrá. Er miðað við að lóðin verði auglýst og úthlutað til samræmis við ákvæði 4.3. í reglum um úthlutun lóða.

17.Grímsey - beiðni um styrk til byggingarsögulegrar rannsóknar

Málsnúmer 2022110417Vakta málsnúmer

Lagt fram að nýju erindi Elínar Óskar Hreiðarsdóttur fh. Fornleifastofnunar og Hjörleifs Stefánssonar fh. Gullinsniðs ehf. þar sem óskað er eftir styrk til rannsóknarverkefnis og húsaskráningar í Grímsey.
Skipulagsráð samþykkir að veita vilyrði fyrir styrk upp á 1.000.000 kr. þar sem forsenda fyrir greiðslu er að fyrir liggi húsaskráning sem samþykkt hefur verið af Minjastofnun.

18.Miðbær - langtímaleyfi söluvagna 2025

Málsnúmer 2024101112Vakta málsnúmer

Umsóknarfrestur um langtímaleyfi söluvagna fyrir árið 2025 rann út þann 6. desember sl. 2 umsóknir bárust um þau þrjú langtímaleigustæði sem auglýst voru laus til úthlutunar. Thomas Piotr ehf. og Foks Food ehf. sóttu um endurnýjun á sínum leyfum í Hafnarstræti.
Skipulagsráð samþykkir eftirfarandi úthlutun langtímaleyfa:


- Thomas Piotr ehf., langtímaleyfi til 12 mánaða fyrir matarvagn í Hafnarstræti.


- Karin Spanjol, langtímaleyfi til 12 mánaða fyrir matarvagn í Hafnarstræti.


Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.

19.Hafnarstræti - göngugatan - sumarlokun frá júní - ágúst

Málsnúmer 2024050988Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar niðurstöður netkönnunar um lokun göngugötunnar sumarið 2024 sem RHA framkvæmdi fyrir Akureyrarbæ.

20.Akureyrarflugvöllur - álagning gatnagerðargjalda

Málsnúmer 2024120364Vakta málsnúmer

Erindi Sigrúnar B. Jakobsdóttur fh. Isavia innanlandsflugvalla ehf. varðandi mögulega aðkomu Akureyrarbæjar að framkvæmd við nýja götu, Norðurgrund, til að gera lóðir þar byggingarhæfar.
Í upphafi þessa dagskrárlið bar Halla Björk Reynisdóttir L-lista upp mögulegt vanhæfi til þess að fjalla um þennan lið.


Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir skipulagsráð og var það ekki samþykkt.


Skipulagsráð tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa og bæjarstjóra að hefja viðræður við Isavia innanlandsflugvelli ehf. í samræmi við erindið.

21.Þjóðvegir á Akureyri - forgangsröðun framkvæmda

Málsnúmer 2024091322Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar verkefnalisti varðandi framtíðarsýn sameiginlegra verkefna Akureyrarbæjar og Vegagerðarinnar.

Skipulagsráð frestar umræðum til næsta fundar

22.Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2024

Málsnúmer 2022010178Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 995. fundar, dagsett 28. nóvember 2024, með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 3 liðum og er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar.

23.Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2024

Málsnúmer 2022010178Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 996. fundar, dagsett 5. desember 2024, með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 4 liðum og er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Fundi slitið - kl. 12:00.