Aðeins er hægt að fá stig fyrir einn lið í hverjum flokki - hámark stiga úr þessu mati eru 14 stig.
Til þess að umsókn verði samþykkt á biðlista þarf umsækjandi að vera metinn til að lágmarki
sex stiga.
1. Stuðningsþörf
Aðeins er hægt að fá stig fyrir einn lið í hverjum dálki - hámark stiga úr þessum kafla eru 3 stig.
Stuðningsþörf |
Stig |
Er ekki metinn í þörf fyrir stuðning |
0 |
Er með litla stuðningsþörf |
1 |
Er með meðal stuðningsþörf – innan við 15 klst. á viku |
2 |
Er með mikla stuðningsþörf – meira en 15 klst. á viku |
3 |
2. Húsnæðisstaða
Aðeins er hægt að fá stig fyrir einn lið í hverjum dálki - hámark stiga úr þessum kafla eru 4 stig.
Húsnæðisstaða |
Stig |
Umsækjandi er með öruggt húsnæði |
0 |
Umsækjandi býr í óöruggu húsnæði, s.s. gistir hjá vinum eða á gistiheimilum |
3 |
Umsækjandi er að ljúka afplánun eða dvöl á sjúkrahúsi |
3 |
Umsækjandi er á áfangaheimili og hefur lokið a.m.k. sex mánaða samfelldri dvöl |
3 |
Umsækjandi hefur ekki í nein hús að venda |
4 |
3. Heilsufar
Aðeins er hægt að fá stig fyrir einn lið í hverjum dálki- hámark stiga úr þessum kafla eru 4 stig
Líkamlegt og andlegt heilsufar umsækjanda |
Stig |
Á ekki við |
0 |
Er ábótavant, erfitt fyrir umsækjanda til að búa í sjálfstæðri búsetu |
1 |
Er mjög ábótavant, umsækjandi þarf stuðning við búsetu |
2 |
Er mjög slæmt, umsækjandi þarf mikinn stuðning við búsetu |
4 |
4. Önnur þjónusta sem umsækjandi hefur
Aðeins er hægt að fá stig fyrir einn lið í hverjum dálki- hámark stiga úr þessum kafla eru 3 stig.
Önnur þjónusta sem umsækjandi hefur |
Stig |
Umsækjandi er ekki með neina þjónustu |
0 |
Umsækjandi er með félagslega ráðgjöf |
1 |
Umsækjandi nýtur stuðnings frá öðrum kerfum, s.s. frá heilbrigðiskerfi |
2 |
Umsækjandi nýtir reglubundið þjónustu vettvangsteymis |
3 |