Kattahald - spurt og svarað

Algengar spurningar og svör varðandi kattahald 

Smellið á plúsana til að sjá meira.

Er kötturinn minn sjálfkrafa skráður hjá Akureyrarbæ þegar hann er örmerktur eða með ættbók?  

Nei, það þarf að sækja sérstaklega um leyfi til kattahalds. Umsóknareyðublað má nálgast inn á þjónustugátt, sjá hér. Athugið að það þarf íslykil eða rafræn skilríki til að komast inn á þjónustugáttina. 

Hér má sjá gjaldskrá vegna kattahalds. 

Er skylda að skrá köttinn? 

Já, það er skylda. Kattahald í Akureyrarbæ er óheimilt nema að fengnu leyfum og uppfylltum skilyrðum. Skilyrðin sem þarf að uppfylla eru að kötturinn þarf að vera örmerktur, ormahreinsaður og keypt sé ábyrgðartrygging fyrir köttinn. Ef um fjölbýlishús er að ræða þarf að liggja fyrir samþykki eigenda íbúða fjöleignahúsa. 

Eru kettir leyfðir í fjölbýlis-/fjöleignahúsum? 

Já, ef eigandi hefur aflað samþykkis eigenda íbúða hússins fyrir kattahaldi þegar um er að ræða sameiginlegt húsrými.   

Skriflegt samþykki sameigenda fer skv. 33. e gr. og 33. f gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Samþykki 2/3 hluta eigenda þarf ef fara þarf um sameiginlegan inngang eða stigagang að íbúð. Gildir það jafnframt ef um utanáliggjandi stigagang er að ræða eða ef gengið er inn í íbúð af svölum sbr. 1. mgr. 33. f gr. 

Ef íbúð er með sérinngang eða gengið er inn um sameiginlegar útitröppur þá þarf ekki að afla samþykkis annarra eigenda fjölbýlishúss, sbr. 1. mgr. 33. f gr. Skiptir ekki máli í því samhengi þótt annað rými fasteignarinnar sé sameiginlegt, svo sem lóð og annað sameiginlegt rými. 

Hlaða niður eyðublaði fyrir skriflegt samþykki um kattahald í fjölbýlishúsi

Hvað er innifalið í leyfisgjaldinu? 

Eftirlitsgjaldið er þjónustugjald frá sveitarfélaginu sem það nýtir til að geta haldið úti þjónustu í málaflokknum, t.d. fyrir starfsmenn og verktaka sem koma að málaflokkunum, rekstur á dýrageymslu og sandskipti á leiksvæðum bæjarins.  

Hér má sjá gjaldskrá vegna kattahalds. 

Hvað geri ég þegar ég er búinn að senda inn umsóknina?  

Ef umsókn og öll fylgigögn eru í lagi verður útbúið leyfisbréf sem sent verður á heimili umsækjanda ásamt greiðsluseðli og númeraðri plötu sem fer um háls kattarins. Ef eitthvað vantar í umsóknina er haft samband við umsækjanda og honum leiðbeint hvernig nálgast skal upplýsingar sem upp á vantar.

Hvaða fylgigögn á að senda með umsókninni? 

  • Vottorð um síðustu ormahreinsun, þarf að vera innan við árs gömul 

  • Staðfesting dýralæknis um örmerkingu  

  • Staðfesting á ábyrgðartryggingu 

  • Skriflegt samþykki 2/3 eigenda í fjöleignarhúsi þar sem eitthvert húsrými er sameiginlegt.

Hvernig nálgast ég þessi fylgigögn? 

  • Inni á umsóknareyðublaðinu er hægt að sækja sérstakt form til undirritunar eigenda í fjöleignarhúsi.  

  • Taka skal mynd eða afrit af vottorði um síðustu ormahreinsun eða biðja dýralækni að senda sér afrit og láta fylgja með umsókn 

  • Taka skal mynd eða afrit af staðfestingu dýralæknis um örmerkingu eða biðja dýralækni að senda sér og láta fylgja með umsókn 

  • Taka skal mynd eða afrit af ábyrgðartryggingu sem gjarnan finnst á „Mínum síðum“ tryggingafélaganna. Einnig hægt að biðja tryggingafélagið um að senda sér afrit. 

Hverjir sinna dýraeftirlitinu? 

Dýraeftirlit snýr að margvíslegum þáttum og er sinnt af starfsmönnum umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sem og verktökum. 

Hvert tilkynni ég óskráðan kött? 

Hægt er að senda ábendingu inn á ábendingavef Akureyrarbæjar, sjá hér.  

Ef mig grunar illa meðferð á ketti, hvert get ég leitað? 

Hringja í Matvælastofnun (MAST) í síma 530 4800 eða senda inn ábendingu á ábendingavef Matvælastofnunar.  

Sjá einnig fyrir nánari upplýsingar. 

Hvernig afskrái ég köttinn? 

Ef kötturinn deyr þarf að tilkynna það til sveitarfélagsins. Einnig þarf að láta vita ef kötturinn flytur úr sveitarfélaginu. Hægt er að afskrá köttinn með því að senda tölvupóst á dyrahald@akureyri.is og láta fylgja með nafn og kennitölu eiganda og númer dýrs.  

Mega kettir vera lausir? 

Lausaganga katta er ekki bönnuð á Akureyri. 

Hins vegar er mælst til þess að lausaganga katta sé takmörkuð eins og unnt er á varptíma fugla og sérstaklega yfir nætur. Mikilvægt er að kettir beri bjöllur um hálsinn til verndar fuglum á varptíma og á meðan ungar eru að verða fleygir.

Kattahald í Hrísey og Grímsey 

Kattahald er bannað í Grímsey og mega kettir hvorki dvelja í Grímsey né koma í heimsóknir. 

Lausaganga katta er bönnuð í Hrísey. 

Síðast uppfært 04. september 2024