Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með breytingu á aðalskipulagi skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan fellur undir lög um
umhverfismat áætlana nr. 105/2006 og fylgja henni umhverfisskýrsla.
- Virkjun á Glerárdal, Glerárdalsvirkjun II - aðalskipulagsbreyting
Tillagan gerir ráð fyrir inntakslóni Glerárvirkjunar II á Glerárdal en auk þess er lega fallpípu sýnd á uppdrætti. Einnig
gerir tillagan ráð fyrir nýju iðnaðarsvæði 1.61.6 I og nýju athafnasvæði 1.61.7 A í Réttarhvammi ofan Glerárbrúar.
Uppdráttur
Tillaga að deiliskipulagi:
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með deiliskipulagstillögu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan fellur undir lög
um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 og fylgir henni umhverfisskýrsla.
Tillagan gerir ráð vatnsaflsvirkjun á Glerárdal sem felst í að stífla Glerá ofan Glerárgils og leiða vatnið eftir um 6
km langri niðurgrafinni þrýstipípu að stöðvarhúsi í Réttarhvammi á skilgreindu iðnaðarsvæði 1.61.6 I. Virkjuð
fallhæð yrði um 240 m og uppsett afl um 3.3 MW. Meðfram fallpípu er gert ráð fyrir útivistarstíg frá þéttbýli og að
inntakslóni. Gert er ráð fyrir geymslu- og vinnslusvæði jarðefna á reit 1.61.7 A.
Uppdráttur 1
Uppdráttur 2
Uppdráttur 3
Skipulags- og byggingarskilmálar
Tillöguuppdrættir ásamt greinargerðum og umhverfisskýrslum munu liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar,
Geislagötu 9, 1. hæð og hjá Skipulagsstofnun frá 22. febrúar til 6. apríl 2014, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér
tillögurnar og gert við þær athugasemdir.
Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar rennur út sunnudaginn 6. apríl 2014 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar
Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
22. febrúar 2014
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar