Drög að deiliskipulagi Hvannavallareits, sem afmarkast af Hvannavöllum, Glerárgötu og Tryggvabraut, er nú til kynningar í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Uppdráttur - drög
Greinargerð - drög
Húsakönnun - drög
3D Módel (þarf Acrobat Reader 10 eða nýrri útgáfu). Möguleikar á að þysja út og inn og snúa á alla kanta.
Glærusýning frá kynningarfundi 7. nóvember 2016.
Ábendingum er hægt að koma á framfæri skriflega til skipulagsdeildar í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, 600 Akureyri eða á netfangið: skipulagsdeild@akureyri.is fyrir 23. nóvember.
Þeir sem þekkja til sögu svæðisins og hafa upplýsingar og athugasemdir við húsakönnunina eru einnig hvattir til að senda inn ábendingar.
3. nóvember 2016
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar