Viðjulundur 1 og 2 - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi og íbúafundur

Tillaga að deiliskipulagsbreytingu á Viðjulundi 1, 2A og 2B
Tillaga að deiliskipulagsbreytingu á Viðjulundi 1, 2A og 2B

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Viðjulund 1 og 2.

Skipulagstillagan gerir ráð fyrir að í stað núverandi byggingar á lóð Viðjulundar 1 verði reist tvö íbúðarhús, annað fimm hæða og hitt sjö hæða, með þremur íbúðum á hverri hæð auk geymslukjallara undir báðum húsum. Jafnframt er gert ráð fyrir hálfniðurgrafinni bílgeymslu með bílastæðum á þaki. Þá gerir tillagan m.a. ráð fyrir að suðurinnkeyrsla á lóð Viðjulundar 2 færist norðar.

Samhliða þessari breytingu er gerð minniháttar breyting á afmörkun deiliskipulags íbúðasvæðis við Furulund.

Deiliskipulagsuppdrætti má sjá hér og hér. 

Kynningargögn frá íbúafundi sem haldinn var 24.ágúst má nálgast hér.

Tillögurnar verða jafnframt aðgengilegar hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 16.ágúst - 2.október 2023. Athugasemdum þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram má skila með tölvupósti á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, 600 Akureyri. Einnig er hægt að senda inn athugasemdir í gegnum skipulagsgátt https://www.skipulagsgatt.is/ undir flipanum Umsagnir.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 2.október 2023.

  • Fimmtudaginn 24.ágúst nk. verður haldinn kynningarfundur um tillögurnar þar sem skipulagshönnuður mun greina nánar frá áformunum.
    Fundurinn verður haldinn í sal Rauða krossins, Viðjulundi 2 á milli kl. 17.00 og 18.00. Hlökkum til að sjá ykkur!

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan