Skipulagssvæðið afmarkast af lóð Austursíðu 6. Tillagan gerir ráð fyrir nýjum byggingarreit sem rúmar þriggja hæða skrifstofukjarna. Flatarmál hverrar hæðar verður 450 m2. Þá gerir tillagan ráð fyrir hækkun nýtingarhlutfalls lóðarinnar úr 0,5 í 0,7.
Skipulagstillöguna má nálgast hér og skýringarmynd hér . Tillagan verður auk þess aðgengileg á 1. hæð í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 10. maí til 26. júní 2023
Hægt er að skila inn athugasemdum við skipulagstillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 26. júní 2023.
Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.