Verkmenntaskólinn á Akureyri – Tillaga að deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi.

Skipulagssvæðið afmarkast af Mýrarvegi í vestri, Mímisbraut í norðri og Hringteigi í austri. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir tveimur nýbyggingum auk viðbygginga við núverandi húsnæði.

Hér að neðan er hægt að skoða tillögu- og skýringaruppdrátt ásamt greinargerð sem munu einnig liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 25. júní til 6. ágúst 2014, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is/skipulagsdeild undir: Auglýstar tillögur.

Greinargerð

Skýringaruppdráttur

Uppdráttur

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 6. ágúst 2014 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

25. júní 2014
          Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan