Spennistöð við Strandgötu

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar.

Tillagan gerir ráð fyrir að sunnan Strandgötu, við innkeyrslu að menningarhúsinu Hofi og hafnarsvæði, er bætt við lóð og byggingarreit fyrir spennistöð sem getur verið allt að 30 m2 að stærð auk lagnakjallara. Byggingin skal vera á einni hæð með flötu eða einhalla þaki og hámarksvegghæð 2,4 m frá gólfkóta. Jafnframt eru settir fram nánari skilmálar um byggingarefni og hönnun mannvirkisins.

Skipulagstillöguna má nálgast hér. Tillagan verður auk þess aðgengileg á 1. hæð í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 9. mars til 24. apríl 2022.

Hægt er að skila inn athugasemdum og ábendingum um skipulagstillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis á Skipulagsdeild, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 24. apríl 2022.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan