Nýtt deiliskipulag fyrir Sunnuhlíð 12 - skipulagslýsing

Verslunarmiðstöðin Sunnuhlíð og nágrenni
Verslunarmiðstöðin Sunnuhlíð og nágrenni

Hafin er vinna við nýtt deiliskipulag fyrir Sunnuhlíð 12. Skipulagssvæðið er merkt sem reitur VÞ18 í gildandi aðalskipulagi og afmarkast af lóðamörkum Sunnuhlíðar 12. Umrætt svæði er um 0,9 ha að stærð.

Forsendur deiliskipulagsvinnunnar eru uppbygging heilsugæslu í norðurhluta Akureyrar. Í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð er gert ráð fyrir heilsugæslu á 2. hæð ásamt viðbyggingu á tveimur hæðum, alls um 800 m2 að stærð. Í deiliskipulaginu verður ennfremur gert grein fyrir bílastæðum, umferðarflæði og möguleika á bílskýli fyrir heilsugæslu innan lóðarinnar, ásamt því að skoðuð verður hugsanleg stækkun lóðarinnar til austurs með færslu á göngustíg.

Lýsingu fyrir skipulagsverkefnið má nálgast hér. Lýsingin verður auk þess aðgengileg hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi frá 16. febrúar til 4. mars 2022.
Hægt er að skila inn ábendingum varðandi skipulagslýsinguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 4. mars 2022.

Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsingar hjá Akureyrarbæ. Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem eru birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan