Drottningarbrautarreitur, Hafnarstræti 71 – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.

Tillagan felur í sér breytingar á þaki á húsinu við Hafnarstræti 71.

Hægt er að skoða tillöguna hér að neðan.

Uppdráttur

Einnig mun tillöguuppdráttur liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 11. maí til 22. júní 2016, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. 

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 22. júní 2016 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

11. maí 2016
           Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan