Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu Naustahverfis 1.
áfanga.
Breytingin nær til lóðar Ásatúns 40-48. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir stækkun lóðarinnar og heimilt verður að byggja fjögur
fjölbýlishús í stað tveggja áður. Íbúðafjöldi eykst um 14 til 18 og verða 60 íbúðir á lóðinni
eftir breytingu. Ekki verður gert ráð fyrir bílgeymslum í húsunum og eykst fjöldi bílastæða á lóð í samræmi
við íbúðafjölda.
Hér að neðan er hægt að skoða tillöguuppdrátt ásamt greinargerð sem mun liggja frammi í þjónustuanddyri
Ráðhúss Akureyrar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 26. nóvember 2014 til 7. janúar 2015, svo að þeir sem þess óska geti kynnt
sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.
Tillöguuppdráttur
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 7. janúar og skal athugasemdum skilað skriflega til
Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang
sendanda kemur fram.
26. nóvember 2014
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar