Síðuskóli
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkti þann 6. desember sl. að gera óverulega breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 fyrir lóð Síðuskóla skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin tekur til reita sem merktir eru samfélagsþjónusta S30 og S31 í gildandi aðalskipulagi og felur í sér að reitirnir eru sameinaðir í einn reit fyrir samfélagsþjónustu.
Skipulagsuppdrátt má sjá hér .
Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar geta snúið sér til þjónustu- og skipulagssviðs Akureyrarbæjar í Ráðhúsi eða sent fyrirspurn á netfangið skipulag@akureyri.is.
Breyting á deiliskipulagi Síðuskóla
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Síðuskóla.
Breytingin tekur til svæðis umhverfis Síðuskóla og felst í því að skipulagssvæðið er stækkað til vesturs að Vestursíðu. Á lóð Síðuskóla er skilgreindur nýr byggingarreitur fyrir leikskóla á einni til tveimur hæðum ásamt viðbyggingu og tengibyggingu við skólann. Þá er skilgreind ný lóð með byggingarreit fyrir hjúkrunarheimili á allt að fjórum hæðum á norðurenda deiliskipulagssvæðisins.
Deiliskipulagsuppdrátt ásamt greinargerð má nálgast hér .
Tillagan verður jafnframt aðgengileg hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 14. desember - 31. janúar 2023. Hægt er að skila inn athugasemdum um tillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 31. janúar 2023.
Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.