Hver hafa skarað fram úr í jafnréttismálum?

Akureyrarbær auglýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar sveitarfélagsins. Tilgangurinn er að veita viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis í samræmi við mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.

Viðurkenningu geta hlotið:

Fyrirtæki/stofnanir sem hafa: 

  • Sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttismálum
  • Unnið að því að afnema staðalímyndir kynjanna
  • Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi mannréttinda
  • Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið áreiti eða kynferðislega áreitni á vinnustöðum

Félög/félagasamtök sem hafa:

  • Sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttismálum
  • Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi mannréttinda
  • Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið áreiti eða kynferðislega áreitni innan félags
  • Veitt leiðbeinendum/þjálfurum fræðslu um jafnréttismál

Einstaklingar sem hafa skarað fram úr í vinnu að jafnréttis- og mannréttindamálum eða unnið gegn staðalímyndum.

Einnig kemur til álita að veita hvatningarviðurkenningu vegna nýjunga sem stuðla að framgangi jafnréttis í samræmi við mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.

Rökstuddum tilnefningum skal skilað í síðasta lagi 3. apríl nk. í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar sem er aðgengileg hér. Fólk skráir sig inn í þjónustugáttina með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Tilnefningar til jafnréttisviðurkenninga er að finna undir flipanum umsóknir, uppsagnir o.fl. eyðublöð. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan