Akureyrarbær auglýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar sveitarfélagsins. Tilgangurinn er að veita viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis í samræmi við mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.
Viðurkenningu geta hlotið:
Fyrirtæki/stofnanir sem hafa:
- Sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttismálum
- Unnið að því að afnema staðalímyndir kynjanna
- Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi mannréttinda
- Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið áreiti eða kynferðislega áreitni á vinnustöðum
Félög/félagasamtök sem hafa:
- Sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttismálum
- Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi mannréttinda
- Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið áreiti eða kynferðislega áreitni innan félags
- Veitt leiðbeinendum/þjálfurum fræðslu um jafnréttismál
Einstaklingar sem hafa skarað fram úr í vinnu að jafnréttis- og mannréttindamálum eða unnið gegn staðalímyndum.
Einnig kemur til álita að veita hvatningarviðurkenningu vegna nýjunga sem stuðla að framgangi jafnréttis í samræmi við mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.
Rökstuddum tilnefningum skal skilað í síðasta lagi 3. apríl nk. í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar sem er aðgengileg hér. Fólk skráir sig inn í þjónustugáttina með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Tilnefningar til jafnréttisviðurkenninga er að finna undir flipanum umsóknir, uppsagnir o.fl. eyðublöð.