Oddeyrarbót 1, 2 og 3 - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar

Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Oddeyrarbótar
Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Oddeyrarbótar

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar.

Skipulagssvæðið afmarkast af lóðum nr. 1, 2 og 3 við Oddeyrarbót. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að á lóðunum verði heimilt að reisa tveggja hæða byggingar með hámarksvegghæð 7,5 m.

Ofangreinda tillögu má nálgast hér.

Tillagan verður jafnframt aðgengileg hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 19.júlí - 1.september 2023.

Hægt er að skila inn athugasemdum um tillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 1.september 2023.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan