Breyting á deiliskipulagi Jaðarsvallar.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 6. október 2015 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Jaðarsvöll.
Breytingin felur í sér að byggingarreitur nr. 2 stækkar úr 1.400 m² í 3.000 m².
Breyting á deiliskipulagi miðbæjar.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 6. október 2015 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir miðbæ Akureyrar.
Breytingin felur í sér að lóðamörk milli Strandgötu 11b og Glerárgötu 3b færast um 4 m til suðurs. Lóð Strandgötu 11b verður eftir breytingu 378,8 m² og lóð Glerárgötu 3b verður 347,5 m².
Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 7. október 2015,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B deild - Útgáfud.: 8. október 2015