Nr. 889/2015 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Breyting á deiliskipulagi Jaðarsvallar og Strandgötu 11b og Glerárgötu 3b í miðbæ

Breyting á deiliskipulagi Jaðarsvallar.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 6. október 2015 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Jaðarsvöll.
Breytingin felur í sér að byggingarreitur nr. 2 stækkar úr 1.400 m² í 3.000 m². 

Breyting á deiliskipulagi miðbæjar.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 6. október 2015 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir miðbæ Akureyrar.
Breytingin felur í sér að lóðamörk milli Strandgötu 11b og Glerárgötu 3b færast um 4 m til suðurs. Lóð Strandgötu 11b verður eftir breytingu 378,8 m² og lóð Glerárgötu 3b verður 347,5 m². 

Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 7. október 2015,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 8. október 2015

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan