Nr. 796/2015 Auglýsing um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Frístundabyggð við Búðargil

Breyting á deiliskipulagi Búðargils.
Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 6. ágúst 2015 samþykkt deiliskipulags­breytingu fyrir Búðargil.
Breytingin felur m.a. í sér að lóð nr. 2 við Sunnutröð stækkar til suðurs um 3.373 m². Byggingar­reitur D lengist og heimilt verður að bæta við þremur frístunda­húsum. Byggingarreitur B minnkar og bætt verður við bílastæðum.

Breyting á deiliskipulagi Innbæjarins.
Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 6. ágúst 2015 samþykkt deiliskipulags­breytingu fyrir Innbæinn.
Breytingin felur í sér að afmörkun skipulagssvæðisins breytist til samræmis við skipulags­mörk Búðargils.

Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulags­laga nr. 123/2010 og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 25. ágúst 2015,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 9. september 2015

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan