Breyting á deiliskipulagi Búðargils.
Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 6. ágúst 2015 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Búðargil.
Breytingin felur m.a. í sér að lóð nr. 2 við Sunnutröð stækkar til suðurs um 3.373 m². Byggingarreitur D lengist og heimilt verður að bæta við þremur frístundahúsum. Byggingarreitur B minnkar og bætt verður við bílastæðum.
Breyting á deiliskipulagi Innbæjarins.
Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 6. ágúst 2015 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Innbæinn.
Breytingin felur í sér að afmörkun skipulagssvæðisins breytist til samræmis við skipulagsmörk Búðargils.
Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 25. ágúst 2015,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B deild - Útgáfud.: 9. september 2015