Nr. 685/2014 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Breyting á deiliskipulagi Sandgerðisbótar og Deiliskipulag 2. áfanga Hálanda.

Breyting á deiliskipulagi Sandgerðisbótar.
Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 25. júní 2014, á grundvelli 4. gr., e-liðar, í samþykkt um skipulagsnefnd og í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Sandgerðisbót, Óseyri 19.
Breytingin felur í sér að lóð nr. 19 við Óseyri stækkar í 693,7 m² og byggingarreitur fyrir viðbyggingu við núverandi hús er skilgreindur.

Deiliskipulag 2. áfanga Hálanda.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 20. maí 2014 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulag fyrir 2. áfanga Hálanda í landi Hlíðar­enda.
Deiliskipulagið gerir m.a. ráð fyrir 36 lóðum fyrir frístundahús á um 8,3 ha svæði.

Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 30. júní 2014, 

Anna Bragadóttir,

verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 14. júlí 2014

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan