Breyting á deiliskipulagi Sandgerðisbótar.
Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 25. júní 2014, á grundvelli 4. gr., e-liðar, í samþykkt um skipulagsnefnd og í samræmi
við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Sandgerðisbót, Óseyri 19.
Breytingin felur í sér að lóð nr. 19 við Óseyri stækkar í 693,7 m² og byggingarreitur fyrir viðbyggingu við núverandi
hús er skilgreindur.
Deiliskipulag 2. áfanga Hálanda.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 20. maí 2014 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulag fyrir
2. áfanga Hálanda í landi Hlíðarenda.
Deiliskipulagið gerir m.a. ráð fyrir 36 lóðum fyrir frístundahús á um 8,3 ha svæði.
Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 30. júní 2014,
Anna Bragadóttir,
verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 14. júlí 2014