Skipulagsstofnun staðfesti þann 30. maí 2014 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykkt var í bæjarstjórn
Akureyrarkaupstaðar þann 20. maí 2014.
Í breytingartillögunni er gert ráð fyrir nýju iðnaðarsvæði 1.61.6 I í Réttarhvammi, nýrri aðkomuleið frá
Hlíðarfjallsvegi, nýju athafnasvæði í Réttarhvammi og fallpípu vegna virkjunar.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsstofnun, 30. maí 2014.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
Ottó Björgvin Óskarsson.
B-deild - Útgáfud.: 18. júní 2014