Nr. 572/2014 AUGLÝSING um breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 vegna virkjunar í Glerárdal.

Skipulagsstofnun staðfesti þann 30. maí 2014 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykkt var í bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar þann 20. maí 2014.
Í breytingartillögunni er gert ráð fyrir nýju iðnaðarsvæði 1.61.6 I í Réttarhvammi, nýrri aðkomuleið frá Hlíðarfjallsvegi, nýju athafnasvæði í Réttarhvammi og fallpípu vegna virkjunar.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

 

Skipulagsstofnun, 30. maí 2014.

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.

Ottó Björgvin Óskarsson.

B-deild - Útgáfud.: 18. júní 2014

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan