Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 10. júní 2015 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Brekkuskóla og nágrenni.
Breytingin felur í sér að byggingarreitur á norðurhluta laugarsvæðis Sundlaugar Akureyrar stækkar um 6 m til vesturs. Heimilt er m.a. að reisa þar rennibraut sem verður allt að 14,5 m á hæð.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 11. júní 2015,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 26. júní 2015