Nr. 566/2015 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Breyting á deiliskipulagi Brekkuskóla og nágrennis.

Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 10. júní 2015 samþykkt deiliskipulags­breytingu fyrir Brekkuskóla og nágrenni.
Breytingin felur í sér að byggingarreitur á norðurhluta laugarsvæðis Sundlaugar Akureyrar stækkar um 6 m til vesturs. Heimilt er m.a. að reisa þar rennibraut sem verður allt að 14,5 m á hæð.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 11. júní 2015,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 26. júní 2015

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan