Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæða sunnan Glerár.
Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 11. júní 2014, á grundvelli 4. gr., e-liðar, í samþykkt um skipulagsnefnd og í
samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir hafnarsvæði sunnan Glerár, Grímseyjargötu 3 og
Laufásgötu (landnúmer 149144).
Breytingin felur m.a. í sér að lóð og byggingarreitur Grímseyjargötu 3 stækka og nýtingarhlutfall eykst. Á
Laufásgötu stækkar byggingarreitur til norðausturs og suðausturs.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 11. júní 2014,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 11. júní 2014