Nr. 553/2014 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Grímseyjargata og Laufásgata

Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæða sunnan Glerár.

Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 11. júní 2014, á grundvelli 4. gr., e-liðar, í samþykkt um skipulagsnefnd og í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir hafnarsvæði sunnan Glerár, Gríms­eyjar­götu 3 og Laufásgötu (landnúmer 149144).
Breytingin felur m.a. í sér að lóð og byggingarreitur Grímseyjargötu 3 stækka og nýt­ingar­hlutfall eykst. Á Laufásgötu stækkar byggingarreitur til norðausturs og suð­austurs.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 11. júní 2014,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 11. júní 2014

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan