Nr. 421/2014 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Glerárgata 3, 5, 7

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 18. mars 2014 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir miðbæ Akureyrar, Glerárgötu 3, 5 og 7.
Breytingin felur í sér að lóðir nr. 3 og 5 við Glerárgötu eru sameinaðar lóð nr. 7 við sömu götu. Heimilt er að fjarlægja byggingar á lóðinni og breytast m.a. aðkoma, bílastæði, byggingarreitur og byggingarskilmálar.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 9. apríl 2014,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála

B-deild - Útgáfud.: 2. maí 2014

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan