Nr. 16/2014 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað - Kjarnaskógur og Hamrar

Deiliskipulag fyrir Kjarnaskóg og Hamra.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 19. nóvember 2013 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulag fyrir Kjarnaskóg og Hamra.
Deiliskipulagið felur í sér að koma á formlegu deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði, tjald­svæðið og útilífsmiðstöð skáta.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 2. janúar 2014,

Margrét Mazmanian Róbertsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 16. janúar 2014

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan