Nr. 1016/2014 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Norðurtangi

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 21. október 2014 samþykkt deiliskipulags­breytingu fyrir hafnarsvæði sunnan Glerár vegna Norðurtanga 5.
Breytingin felur m.a. í sér að lóð nr. 5 við Norðurtanga stækkar og legu götunnar er breytt lítillega. Hluta hafnarbakka er breytt í geymslu- og athafnasvæði í umsjá hafnar­stjórnar.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 7. nóvember 2014,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2014

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan