Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 21. október 2014 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir hafnarsvæði sunnan Glerár vegna
Norðurtanga 5.
Breytingin felur m.a. í sér að lóð nr. 5 við Norðurtanga stækkar og legu götunnar er breytt lítillega. Hluta hafnarbakka er breytt í
geymslu- og athafnasvæði í umsjá hafnarstjórnar.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 7. nóvember 2014,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2014