Norðurtangi – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar samþykkti 14. ágúst 2014 að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu hafnarsvæða sunnan Glerár við Norðurtanga, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagssvæðið nær til nyrsta hluta Norðurtanga. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir stækkun lóðar nr. 5 við Norðurtanga og hliðrun götunnar. Hluta hafnarbakka er breytt í geymslu- og athafnasvæði í umsjá hafnarstjórnar.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð er að gengilegur hér að neðan og mun einnig liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 20. ágúst til 1. október 2014, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Uppdráttur

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 1. október 2014 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

20. ágúst 2014
       Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan