Hrísey - Kynning á deiliskipulagi hafnar- og miðsvæðis

Drög að deiliskipulagi hafnar- og miðsvæðisins í Hrísey er nú til kynningar í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Drögin eru aðgengileg hér fyrir neðan.

Uppdráttur - drög

Greinargerð - drög

Húsakönnun - drög

Fornleifaskýrsla

Einnig eru þau aðgengileg í anddyri Ráðhúss Akureyrar og versluninni í Hrísey.

Haldinn verður kynningarfundur í Hlein í Hrísey fimmtudaginn 8. desember kl. 16:30. Fundurinn er opinn öllum og eru hagsmunaaðilar hvattir til að mæta.

Ábendingum er hægt að koma á framfæri skriflega til skipulagsdeildar í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, 600 Akureyri eða á netfangið: skipulagsdeild@akureyri.is fyrir 30. desember 2016.

 

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan