Hálönd, frístundabyggð 2. áfangi – Tillaga að deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi.

Skipulagssvæðið afmarkast af Hlíðarfjalli í vestri, opnu svæði í norðri, fyrsta áfanga Hálanda í austri og akstursíþróttasvæði í suðri. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir 36 lóðum fyrir frístundahús.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð er aðgengilegur hér að neðan og mun einnig liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 26. mars til 7. maí 2014, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 7. maí og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

Uppdráttur
Greinargerð

 26. mars 2014
          Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan