Glerárvirkjun II – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Glerárvirkjun II.

Skipulagssvæðið sem breytingum tekur nær til stöðvarhúss Glerárvirkjunar II og umhverfi þess í Réttarhvammi. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir stækkun stöðvarhúss og bílastæðis auk þess sem breyting er gerð á göngustígum.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 8. mars til 19. apríl 2017, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig aðgengileg hér fyrir neðan.

Glerárvirkjun II - breyting við stöðvarhús - Tillaga

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 19. apríl 2017 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

8. mars 2017
            Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan