Deiliskipulag vegna akstursíþrótta- og skotsvæðis á Glerárdal, niðurstaða bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 21. janúar 2014 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir akstursíþrótta- og skotsvæði á Glerárdal í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagssvæðið afmarkast af Hlíðarfjallsvegi í norðri, opnu svæði í austri, Glerá í suðri og fjallskilagirðingu í vestri.

Deiliskipulagið felur m.a. í sér að skipulagsmörkum er breytt og stækkar skipulagssvæðið til vesturs.

Tillagan var auglýst frá 13. nóvember til 27. desember 2013. Alls bárust 9 athugasemdir sem hlotið hafa viðeigandi umfjöllun.

Deiliskipulagið hefur verið sent Skipulagsstofnun og tekur það gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér til skipulagsdeildar, Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.

29. janúar 2014

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan