Deiliskipulagsbreyting fyrir Miðbær Akureyrar, Glerárgata 3, 5 & 7, niðurstaða bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 18. mars 2014 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Miðbæinn - Glerárgötu 3, 5 & 7 í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagssvæðið afmarkast af Glerárgötu í austri, Gránufélagsgötu í norðri, Geislagötu í vestri og húsum við Glérárgötu 1 og 3b að sunnanverðu.

Tillagan gerir ráð fyrir sameiningu lóða 3, 5 og 7 við Glerárgötu.

Tillagan var auglýst frá frá 8. janúar til 19. febrúar 2014. Ein athugasemd barst sem leidd ekki til breytinga á skipulaginu.

Deiliskipulagið hefur verið sent Skipulagsstofnun og tekur það gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.

20. mars 2014

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan