Nr. 1127/2013 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað - Orlofsbyggð norðan Kjarnalundar

Deiliskipulag fyrir orlofsbyggð norðan Kjarnalundar.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 5. nóvember 2013 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulag fyrir orlofsbyggð norðan Kjarna­lundar.
Deiliskipulagið felur í sér sameiningu við núverandi frístundabyggð 1. áfanga og stækkun til vesturs.
Með auglýsingu þessari fellur úr gildi eldra deiliskipulag fyrir orlofsbyggð norðan Kjarna­lundar, ásamt síðari breytingum.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 3. desember 2013,

Margrét Mazmanian Róbertsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 18. desember 2013

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan