Deiliskipulag fyrir orlofsbyggð norðan Kjarnalundar.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 5. nóvember 2013 í samræmi við
3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulag fyrir orlofsbyggð norðan Kjarnalundar.
Deiliskipulagið felur í sér sameiningu við núverandi frístundabyggð 1. áfanga og stækkun til vesturs.
Með auglýsingu þessari fellur úr gildi eldra deiliskipulag fyrir orlofsbyggð norðan Kjarnalundar, ásamt síðari breytingum.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 3. desember 2013,
Margrét Mazmanian Róbertsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 18. desember 2013