Viltu taka þátt í Akureyrarvöku?

Mynd: Andrés Rein Baldursson, 2022
Mynd: Andrés Rein Baldursson, 2022

Akureyrarvaka er árleg bæjarhátíð, haldin síðustu helgina í ágúst sem næst afmæli Akureyrarbæjar 29. ágúst. Hátíðin í ár fer fram helgina 30. ágúst – 1. september.

Við hvetjum einstaklinga, fyrirtæki eða félagasamtök eindregið til þess að vera með í dagskrá hátíðarinnar. Hægt er að skrá þátttöku á www.akureyrarvaka.is

Tilvalið tækifæri til að vera með í að skapa einstaka stemningu á aðal menningarhátíð bæjarins.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan