Vilt þú hýsa stofutónleika á Akureyrarvöku?

Við leitum að heimilum á Akureyri sem vilja hýsa stofutónleika á Akureyrarvöku, laugardaginn 31. ágúst nk. Tónlistarfólkið Guðrún Arngrímsdóttir og Siggi Óli heimsækja heimili á Akureyrarvöku og spila fyrir gesti. Tónleikarnir eru í boði fyrir allt að tíu heimili. Um 15 - 20 mínútna tónlistarflutning er að ræða á milli kl. 13:00 - 19:00. Fjölbreyttur lagalisti í boði. Tónleikarnir eru í samstarfi við Akureyrarbæ og eru gestum og gestgjöfum að kostnaðarlausu. Áhugasamir geta sent tölvupóst á akureyrarvaka@akureyri.is
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan