Úr runna í ruslið

Duglegir plokkarar að hita upp fyrir stóra daginn. Ljósmynd: Hrafnhildur Gunnþórsdóttir.
Duglegir plokkarar að hita upp fyrir stóra daginn. Ljósmynd: Hrafnhildur Gunnþórsdóttir.

Stóri plokkdagurinn verður haldinn sunnudaginn 30. apríl um land allt og því sniðugt að kynna sér helstu upplýsingar og jafnvel hita upp.

Akureyringar eru hvattir til að hreinsa (plokka) rusl í sínu nærumhverfi enda er ýmislegt sem kemur í ljós þegar snjórinn hverfur á vorin. Plokk er frábær útivera og gefandi verkefni sem eflir núvitund og gerir umhverfinu gott. Plokkið kostar ekkert og kallar ekki á búnað eða tæki nema þá helst ruslapoka og hanska.

Facebook-hópurinn Plokk á Akureyri er sniðugur vettvangur til að hafa samband við aðra plokkara, merkja sér svæði til að hreinsa og láta vita hvernig gengur í máli og myndum.

Stærri hópar sem hafa áhuga á að plokka er bent á að hafa samband við umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar til að fá ráðleggingar um svæði sem þörf er á að plokka. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið jbg@akureyri.is

Afrakstur plokksins má skilja eftir í sérstökum gámum sem settir verða við allar grendarstöðvar bæjarins nema við Krambúðina við Hlíðarbraut og Glerártorg frá 27. apríl fram til þriðjudagsins 2. maí. Þeir sem hafa ekki tök á að fara með rusl á grendarstöðvar vegna umfangs eða stærðar þess sem þarf að fjarlægja, er bent á að senda tölvupóst á netfangið jbg@akureyri.is

Stjórnendur og starfsfólk stofnana og fyrirtækja á Akureyri eru hvött til að plokka í kringum sína vinnustaði í vikunni og hita þannig upp fyrir stóra daginn.

Nokkur góð ráð:

  • Plokkum og hreyfum okkur í leiðinni – æfing dagsins.
  • Klæðum okkur eftir veðri.
  • Notum hanska og tangir ef þær eru til. Hægt er að fá lánaðar tangir á Amtsbókasafninu á Akureyri (takmarkað magn í boði).
  • Virkjum alla fjölskylduna, vini og nágranna en hver á sínum hraða.
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan