Leiðbeinendur í ár eru Bryndís Björgvinsdóttir og Stefán Máni.
Ritlistasmiðja Ungskálda 2019 verður haldin laugardaginn 2. nóvember í Verkmenntaskólanum á Akureyri og að þessu sinni eru leiðbeinendur rithöfundarnir Stefán Máni og Bryndís Björgvinsdóttir. Tilvalið fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára með áhuga á ritlist. Skráning er til og með 31. október.
Samhliða ritlistasmiðjunni er efnt til ritlistakeppni Ungskálda þar sem veitt eru peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Skilyrði er þó að textinn sé á íslensku. Tilvalið er fyrir áhugasama að taka þátt í ritlistasmiðjunni 2. nóvember en þó þurfa þeir sem senda inn verk í keppnina ekki að taka þátt í ritlistasmiðjunni eða öfugt. Lokaskil verka í ritlistakeppnina er 16. nóvember.
Nánari upplýsingar á Ungskald.is.
Ungskáld er verkefni á Akureyri sem gengur út á að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Verkefnið er hið eina sinnar tegundar á Íslandi.
Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Akureyrarstofu, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtsbókasafninu. Hægt er að senda nefndinni fyrirspurnir á ungskald@akureyri.is.
Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.