Snjó hefur kyngt niður á Akureyri síðustu sólarhringana. Unnið er að snjómokstri og er mikill fjöldi tækja í notkun á vegum bæjarins og verktaka.
Stígamokstur er í fullum gangi og verið er að moka stíga samkvæmt forgangskorti.
Allar götur í fyrsta forgangi eru færar og er áfram unnið samkvæmt forgangskorti. Þegar búið er að moka götur í forgangi verður farið í að moka íbúðargötur.
Smelltu hér til að skoða upplýsingar um vetrarþjónustu Akureyrarbæjar og vinnureglur sem gilda um snjómokstur.
Ljóst er að það mun taka nokkurn tíma að hreinsa götur og stíga bæjarins eftir snjókomu síðustu daga. Allir eru að gera sitt besta og kappkosta að hreinsun stíga og gatna verði lokið sem fyrst. Nú gildir að sýna þolinmæði og tillitssemi.
Myndin til hliðar sýnir röðun gatna eftir litakóða á forgangskorti í snjómokstri.