Torfunefsbryggja - Drög að tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar

Torfunef deiliskipulagstillaga
Torfunef deiliskipulagstillaga

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kynnir skv. 4.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 drög að tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar.

Með tillögunni er leitast við að skapa lifandi og spennandi hafnarsvæði á Torfunefsbryggju. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir skiptingu svæðisins í þrjár lóðir, fjölgun byggingarreita og breyttri afmörkun hafnarsvæðis. Einungis verður gert ráð fyrir bílastæðum fyrir hreyfihamlaða auk hjólastæða. Þá verður aðkomu að svæðinu breytt og skilmálar settir um yfirbragð og notkun byggingarreita.

Deiliskipulagsuppdrátt má sjá hér. og skýringaruppdrátt hér.

Tillagan verður jafnframt aðgengileg hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 26.apríl - 14.maí 2023. Hægt er að skila inn ábendingum um tillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 14.maí 2023.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan