Tæki til sölu hjá Umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar

Höfuðstöðvar SVA að Rangarárvöllum þar sem tækin verða til sýnis. Mynd: Brynjar Hólm Grétarsson.
Höfuðstöðvar SVA að Rangarárvöllum þar sem tækin verða til sýnis. Mynd: Brynjar Hólm Grétarsson.

Umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í eftirtalin tæki:

  • Kubota F2000 sópur, árgerð 1990
  • VW Transporter bifreið, árgerð 2004
  • Sturtuvagn
  • Þrjár jarðvegsþjöppur
  • Olíutankur
  • Fjórhjólakerra

Tækin verða til sýnis á Rangárvöllum fyrir framan SVA fimmtudaginn 10. október frá kl. 14-15. Starfsfólk umhverfismiðstöðvar verður á staðnum og svarar spurningum sem kunna að koma upp. Tilboðsblöð verða á staðnum og einnig verður hægt að nálgast tilboðsblöð í þjónustuverinu í Ráðhúsinu, Geislagötu 9.

Tilboðum skal skila inn til umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar í Ráðhúsinu fyrir klukkan 13 föstudaginn 11. október 2024. Einnig er hægt að skila inn tilboðum rafrænt með því að senda tölvupóst á netfangið umsarekstur@akureyri.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan