Strandgata lokuð að hluta vegna malbikunarvinnu

Vegna yfirlagnar og malbikunarvinnu verður innri (nyrðri) akrein Strandgötu lokuð frá Hjalteyrargötu að Glerárgötu fram eftir degi í dag 11. júlí.
 
Einnig verður lokað fyrir hliðargötur inn á Strandgötuna, þ.e.a.s. gatnamótin við Norðurgötu og Hríseyjargötu. Syðri akreinin verður opin niður að Hjalteyrargötu en lokað verður inn á Norðurgötu og Hjalteyrargötu.
 
Lokanir eru sýndar með punktalínu á meðfylgjandi mynd.
 
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan