Unnið er að gerð deiliskipulags fyrir Holtahverfi. Svæðið afmarkast af Undirhlíð í suðaustri, Hörgárbraut í suðri, Hlíðarbraut og athafnasvæði í Krossaneshaga í vestri, Krossanesbryggju í norðri, strandlengjunni að norðan og iðnaðar- og hafnarsvæðinu við Sandgerðisbót að austan. Skipulagslýsingin liggur frammi í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar og er aðgengileg hér fyrir neðan.
Skipulagslýsingu fyrir Holtahverfi og svæði austan Krossanesbrautar
Ábendingum er hægt að koma á framfæri skriflega til skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, 600 Akureyri eða á netfangið: skipulagssvid@akureyri.is innan tveggja vikna frá auglýsingu þessari.
6. desember 2017
Sviðsstjóri skipulagssviðs