Vel sóttur fjölskyldudagur í Kjarnaskógi í tilefni Evrópsku samgönguvikunnar

Evrópsku samgönguvikunni lauk á sunnudaginn með skemmtilegum fjölskylduviðburði í Kjarnaskógi á vegum Akureyrarbæjar og Hjólreiðafélags Akureyrar. 

Fjölskyldur komu saman og hjóluðu nokkra stígi í skóginum með fólki frá hjólreiðafélaginu í broddi fylkingar. Á eftir voru grillaðar pylsur ofan í þreytta hjólreiðakappa.

Skúli Gunnar Árnason hjá HFA tók myndir af þessum skemmtilega viðburði. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan